Sögur frá suðrinu
Myndir
17.09.2006 23:01:56 / bjorganna

New Orleans

Liðið sem við spiluðum við á föstudaginn er frá New Orleans og til að komast að skólanum þurftum við að keyra í gegnum alla borgina. Þótt það sé meira en ár liðið frá því að fellibylurinn eyðilagði borgina er mikill hluti hennar ennþá auður og yfirgefinn. Það voru heilu húsalengjurnar það sem augljóst var að enginn býr þar lengur, sum húsin voru meira að segja ennþá í tvennu lagi eftir að tré hafði fallið á þau og það var rusl meðfram öllum götum. Það var hörmung að horfa upp á þetta.

En svo litu sumar göturnar út eins og fellibylurinn hefði aldrei komið. Búið að gera allt upp og hreinsa allt rusl. Með öðrum orðum sagt þá var mjög auljóst hvar ríka fólkið býr og hvar það fátæka bjó þar sem þau hafa ekki enn snúið aftur.

Annars gekk leikurinn mjög vel, við unnum 9-0 :D

Í gær fórum við svo aftur á ströndina og við komum allar heldur rauðar til baka. Svo skelltum við okkur í keilu í gærkveldi. Fyndið hvað það er gaman í keilu en samt fer ég mjög sjaldan. Það er kannski einmitt þess vegna sem það er svona gaman, hver veit :!:

Í næstu viku spilum við svo þrjá leiki á fjórum dögum svo að það verður nóg að gera. Óskið mér góðs gengis :D

Laterz....


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 00:30:17 / bjorganna

Ekkert merkilegt

Ég er ekki að ýkja en internetið er búið að vera meira eða minna bilað síðan ég bloggaði síðast :S Ég hringdi og kvartaði á hverjum einasta degi en það tók þetta fólk LANGAN tíma til að loksins laga þetta. En núna er það loksins komið í lag og vonandi heldur það áfram að vera í lagi.

En alla vega, við erum bara búnar að spila tvo leiki síðan síðast og eins og helgina í Indiana þá unnum við einn og töpuðum hinum. Liðið sem við töpuðum fyrir er nr. 1 í landinu þannig að það er svo sem ekkert skammarlegt við það :S

Svo spilum við aftur á morgun og það kemur sko ekkert annað til greina en að vinna :haha:

Annars er ekki mikið að frétta, fótboltinn tekur upp mestan tímann sem ég hef. Við fórum samt nokkrar á ströndina á afmælinu mínu, oh það var æðislegt 8) Verst að við getum ekki farið oftar :!:

Laterz....


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 01:39:57 / bjorganna

Komin heim

Helgin í Indiana var ekki alveg eins frábær og við höfðum vonað því að við töpuðum öðru leiknum en unnum hinn. En svona er lífið og við urðum að sætta okkur við tap í fyrsta leiknum okkar :(

Við komum ekki heim fyrr en 7 um morguninn á sunnudaginn eftir mjög mjög langa rútuferð. Sem betur fer fengum við frí þann daginn og reyndar mánudaginn líka. Svo í gær byrjaði gamanið aftur með 2-3 klukkutíma æfingum í 40 stiga hita :!::!: Auðvitað halda þjálfararnir því fram að við töpuðum vegna þess að við erum ekki í nógu góðu formi þannig að við erum búnar að fá að hlaupa mikið síðustu tvo daga 8|

En ætli það sé ekki best að ég fari að læra.....það er próf í líffræði á morgun :|

Laterz....


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 16:38:41 / bjorganna

Í Indiana

Jæja þá er komið að því. Eftir um 20 tíma keyrslu komumst við loksins til Indiana og fyrsti leikur síðasta tímabilsins byrjar núna eftir nokkra klukkutíma. Óskið mér góðs gengis :haha: Liðið sem við eigum að spila við er nr. 17 í landinu en við erum núna nr. 27 held ég. Svo spilum við aftur á laugardaginn og svo fáum við að eyða öðrum 20 tímum í rútu á leiðinni heim :S Það er nú samt ekki eins slæmt og það hljómar því að í staðinn fyrir sæti eru kojur í rútunni og risa sjónvörp með dvd spilurum og svoleiðis. En það er fundur hjá þjálfurunum núna þannig að ég verð að fara :!: Ég læt ykkur vita hvernig leikirnir fara 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 23:48:22 / bjorganna

Tossinn ég...

Ég veit að ég er algjör tossi að skrifa á þetta blogg en það er bara ég og þið verðið bara að sætta ykkur við það ;)

Ég komst að því um daginn að ég fæ að vera við útskriftarathöfnina núna í vor. Fæ að kasta upp hattinum og svona að venju Bandaríkjamanna :D Ég á samt eina önn eftir en mig vanta bara 9 einingar til að útskrifast þannig að skólinn leyfði mér að vera við athöfnina núna í staðinn fyrir að þurfa að koma hingað aftur vorið 2007 til að vera við athöfnina sem ég hefði örugglega ekki gert. En mamma, amma og Jói ætla að koma hingað í byrjun maí til að vera athöfnina :D .....úúuu ég er ekkert smá spennt 8) Svo ætlum við öll til New York og vera það í nokkra daga :!:

Svo ætla Bryndís, Kristín og Eyrún að líta við hér í Mobile á leið sinni um Bandaríkin :D Þið verðið að láta mig vita hvenær þið komið stelpur :!:

Svo var spring break fyrir tveimur vikum síðan. Ég fór til Panama city, Orlando, West Palm Beach og Miami. Það var ekkert smá gaman. En ég hef því miður ekki tíma til að segja alla söguna núna því að ég er að verða of sein í vinnuna :S

....Laterz


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 22:49:58 / bjorganna

Loksins loksins...

Ég fékk bílinn minn aftur í dag.......loksins. Ótrúlegt hvað maður verður háður svona hlutum. Ég var bíllaus í tæpar 2 vikur og ég var bara alveg hjálparlaus. Það eru nefnilega ekki svo margir hérna sem eiga bíla því að flestir sem ég þekki eru einhvers staðar annars staðar frá og eiga ekki bíl þannig að á meðan bílinn minn var bilaður þá bara fór ég ekki neitt......oh ég er svo fegin að vera búin að fá hann aftur :lol:

Viðgerðin kostaði $180 sem er frekar vel sloppið held ég........það hefði að minnsta kosti geta verið verra ;)

Veðrið í dag var æðislegt. Sól og 25 stiga hiti....... ég er bara ekki frá því að ég hafi náð mér í smá lit á æfingu áðan 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 05:39:39 / bjorganna

Kristín segir að það sé kominn tími á nýtt blogg...

....og ég verð víst að hlýða ;)

Gamli góði bílinn minn hann Eyríkur rauði ákvað bara að bila í síðustu viku. Síðastliðinn fimmtudag var ég á leiðinni í WalMart...og svo ég haldi nú áfram að tala um Kristínu þá er það uppáhaldsbúðin hennar....og það er alveg rétt hjá henni sko Walmart er algjör snilld :D En alla vega....þegar ég var alveg að vera komin (p.s. það tekur svona 5 mínútur að keyra í Walmart) þá bara vildi Eyríkur rauði ekki fara í gír :!::!::!: Ég vissi barasta ekki hvað ég átti að gera en einhvern veginn gat ég þjösnað honum í fyrsta gír og svo naumlega í annan eftir að hafa þurft að stoppa í kantinum tvisvar og þannig komst ég í Walmart. Og ég bjartsýnismanneskjan vonaði náttúrulega bara að þetta myndi batna á meðan ég væri í Walmar en það gerðist nú því miður ekki þannig að ég þjösnaði helvítis bílnum heim í öðrum gír....lengsta bílferð á ævi minni en ég var mjög heppin að það var eiginlega engin umferð þannig að það var ekki bibað mjög mikið á mig 8|

Það var samt ekki fyrr en á þriðjudaginn sem ég loksins fékk einn af vinum mínum til að draga bílinn á verkstæði og þar situr greyið enn....

.....to be continued

Svo byrjaði ég að þjálfa í síðustu viku og svo fór ég aftur í dag. Mér finnst þetta rosa gaman....fínt að þurfa bara fara einu sinni í viku líka :) Stelpurnar eru rosa fínar og vilja virkilega læra sem gerir mitt start mun auðveldara....en þær hafa aldrei fengið neina markmannsþjálfun þannig þetta svoldil áskorun fyrir mig :S

En það er kominn tími fyrir rúmið....

....laterz


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 02:08:19 / bjorganna

Halló halló allir saman

Jæja ætli það sé ekki löngu kominn tími á mig til að blogga. Það er alveg hreint brjálað að gera hjá mér í skólanum. Ég held að það hafi aldrei verið svona mikið að gera hjá mér bara síðan ég kom til Bandaríkjana. Þetta eru allt mjög skemmtilegir tímar sem ég er að taka en bara mikið að læra fyrir þá....ég ætla samt ekki að kvarta því að það er örugglega hundrað sinnum meira að gera hjá ykkur í háskólanum.

Annars er ég ennþá að vinna á bókasafninu að hjálpa fólki með stærðfræði. Það er samt oftast ekki mikið að gera þannig að ég læri bara á meðan....ekki slæmt að fá borgað fyrir að læra ha :!:

Annars var mér boðin þjálfarastaða í gær. Þá myndi ég vera markmannsþjálfari fyrir high school lið hérna í nágrenninu. Ég hugsa að ég muni enda á því að taka tækifærið þó að það sé mikið að gera hjá mér. Gott að byggja upp smá sambönd hérna og svona... ;) svo er líka ágætis peningur sem ég myndi fá sem sakar svo sem ekki heldur 8)

En ætli það sé ekki best að koma sér til að læra. Það er sögupróf hjá mér á morgun. Oh hvað ég vildi að Jói brósi gæti komið og tekið söguprófin fyrir mig....það myndi að minnsta kosti létta mér lífið :haha:

Laterz....


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 02:17:17 / bjorganna

Komin til Mobile

Jæja þá er ég komin aftur til Mobile. Margt búið að breytast síðan á síðustu önn. Ég er komin með nýjan herbergisfélaga. Hún var bara að byrja í skólanum núna. Hún er frá Suður-Afríku og er í tennisliðinu. Ég hitti hana nú bara í dag en hún virðist vera alveg mjög fín stelpa.....við skulum að minnsta kosti vona það ;)

Svo eru líka nokkrar stelpur úr fótboltaliðinu hættar :cry: Ein útrskrifaðist, önnur gat ekki komið aftur af því að hún féll í einu fagi og tvær höfðu ekki efni á að vera hérna lengur og þurftu að fara aftur heim. Ekkert smá sorglegt en svona er nú víst lífið:!:

Það er sko frí í skólanum á morgun þannig að ég byrja ekki fyrr en á þriðjudaginn. Ekki er það nú verra...

Annars var ekkert smá gaman að hitta allt fólkið aftur. En það eru samt ekki næstum allir komnir ennþá.....og ég sem hélt að ég væri sein 8|

Laterz...


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 18:54:00 / bjorganna

Enn á lífi.....

Já já ég veit að ég er ekki búin að skrifa neitt í heila eilífð og ég biðst velvirðingar á því :S Ég ælta ekki einu sinni að reyna að koma með afsakanir því að það eru í rauninni engar afsakanri því að það tekur svo sem ekki meira en nokkrar mínútur að skrifa nokkur orð hérna :o

Annars er bara allt gott að frétta héðan. Ég skelti mér til St. Louis yfir þakkargjörðarhátíðina. Ég fór með Lene vinkonu minni frá Noregi en hún var í skóla þar í fyrra þannig að hún fór að heimsækja alla gömlu vinina og ég bara elti ;) Við fórum meira að segja alla leið upp til Chigaco. Það var alveg frábært líka og það snjóaði og allt. Ekki frá því að smá heimþrá helltist yfir mig :(

En það er nú ekki langt þangað til að ég fæ að koma heim. Bara tvær vikur :D Hlakka alveg rosa mikið til að hitta alla :D

En ég þarf að fara á æfingu núna. Við erum ennþá að æfa því að það er recruitweekend um helgina. Þjálfararnir okkar eru svo æðislegir að hafa recruitweekend helgina fyrir lokapróf þegar er auðvitað mest að gera og ætlast auðvitað til þess að maður mæti á æfingu tvisvar á dag. Alveg fáránlegt en svona er þetta nú bara víst.......

Laterz.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2005 20:20:47 / bjorganna

Fræg í Ameríku......

Já haldið ekki að mín sé ekki bara orðin fræg í bandaríkjunum ;) eða svona smá að minsta kosti ;) Það kom nefnilega íþróttafréttamaður á æfingu hjá okkur á mánudaginn og vildi endilega gera frétt um okkur því honum fannst svo merkilegt hvað það eru margir útlendingar í liðinu mínu :D Hann valdi svo þrjár til að taka viðtal við og auðvitað valdi hann mig ;) Það er nefnilega svo merkilegt að vera frá Íslandi :!: 8) :!: Við vorum látnar segja nafnið okkar og hvaðan við værum frá á okkar eigin tungumáli og svo spurði hann okkur nokkrar spurningar um hvernig það er að spila í liði með svona marga útlendinga og hvernig samskiptin gengu og svoleiðis. Svo voru líka teknar myndir af okkur æfa og það var akkúrat skotæfing þannig að það koma bara vel út fyrir mig :D

Annars spiluðum við við Spring Hill í gær og unnum 3-0. Það er alltaf gaman að spila við Spring Hill af því að það eru nágrannar okkar. Sama hversu góð eða léleg liðin eru þá eru þetta alltaf góðir leikir. Svona eins og þegar Haukar og FH spila ;)

En núna er venjulega tímabilið okkar formlega búið og þá tekur við svokallað post-season. Hún byrjar um næstu helgi en þá er svokallað conference tournament. Það verður haldið hér því að við unnum regular season conference. En þá spila 4 efstu liðin úr conference um sæti í regionals. Og svo liðið sem vinnur regionals fær að fara á nationals :D Ohhh ég vil ekki einu sinni byrja að hugsa um hversu geðveikt það væri að fara þangað :!::!:

Laterz.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 22:49:40 / bjorganna

Fyrsti heimaleikurinn

Fyrsti heimaleikurinn okkar var í gær og við unnum 3-2 :D Ótrúlegt að það er kominn miður október og við bara búin að spila einn heimaleik. Við eigum svo annan heimaleik á fimmtudaginn í næstu viku og svo er bara venjulega tímabilið búið. En svo tekur við conference, regionals og vonandi national tournament :D Ef við förum á nationals þá verður tímabilið ekki búið fyrr en í lok nóvermber þannig að það er svo sem nóg eftir :!:

Við stelpurnar skelltum okkur svo á djammið eftir leikinn. Þetta er sko fyrsta helgin sem við eigum frí síðan einhvern tímann í byrjun september :!:

Ég er líka búin að kaupa mér miða heim um jólin :D Ég flýg héðan 14. des þannig að ég lendi heima á Íslandi 15. des :D

En ég kom því loksins í verk að taka mynd af fína bílnum mínum. Ég kann ekki að setja mynd beint hingað inn þannig að ég setti hana á myndasíðuna mína :) 

En þar sem mér dettur aldrei neitt sniðugt í hug er bílinn ekki kominn með nafn ennþá. Ég lýsi því hér með eftir nafni á bílinn :D Endilega skrifið uppástungurnar í commentin :D

Laterz....


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2005 02:29:48 / bjorganna

Loksins heima

Úff, loksins komin heim eftir 14 tíma rútuferð. Það er barasta allt of langur tími til að vera í rútu, þó að það séu kojur :!::!:

Annars gekk ekki alveg nógu vel í St. Louis. Við gerðum jafntefli á föstudaginn og unnum 3-2 á laugardaginn. Það eru nefnilega mjög skrítnar reglur hérna í fótboltanum. Við fáum ekki bara 3 stig fyrir sigur, 1 fyrir jafntefli og ekkert fyrir tap heldur er eitthvað rosa fólkið stigakerfi. Þú færð til dæmist fleiri stig fyrir að vinna með 3 mörkum en þú færð fyrir að vinna með 2 mörkum. Ég skil þetta kerfi ekki ennþá en þjálfararnir voru ekki ánægðir með úrslitin því að þeir vildu að við ynnum með a.m.k. 3 mörkum til að fá sem flest stig :!: Bara asnalegt ef þú spyrð mig :S

Það er samt ekki lengi sem við stoppum hérna í Mobile því á miðvikudaginn þá förum við til Daytona Beach, Florida og spilum föstudag og laugardag. Ég hlakka til því að Lilja og Bjössi ætla að koma að horfa, en þau voru hérna í Mobile í fyrra og eru núna í Orlando :haha:

laterz...

P.S. Ég setti inn myndir frá St. Louis. Endilega kíkið á þær :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 03:18:15 / bjorganna

Komin til St. Louis

Við komum til St. Louis um hálf ellefu í morgun eftir næstum því 14 tíma ferð. Við lögðum af stað frá Mobile klukkan níu á miðvikudagskvöldið og keyrðum alla nóttina. Sem betur fer var þetta samt engin venjuleg rúta, heldur rúta með kojum í þannig að við gátum sofið alla leiðina. Frekar þægilegt að horfa á eins og eina bíómynd, fara svo að sofa og vakna þegar komið er á leiðarenda :D

Við fengum að leikja ferðamenn í dag og fórum að skoða "the arc". Þetta er einhver rosa bogi sem við fórum uppí og er tákn St. Louis fyrir að vera "the gateway to the west" sem ég veit ekki alveg hvernig ég á að þýða en St. Louis greiddi leiðina vestur eða eitthvað svoleiðis ;) Ég tók fullt af myndum en ég get ekki sett þær á netið fyrr en ég kem aftur til Mobile :S

Við spilum svo tvo leiki um helgina, á morgun og á laugardaginn :)

En best að koma sér í rúmmið svo ég verði nú vel úthvíld fyrir leikinn á morgun :)

.........heyrumst


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2005 02:36:56 / bjorganna

Þreytt....

Vá hvað ég er eitthvað ónýt í dag. Við komum heim klukkan 5 í morgun eftir um 10 tíma rútuferð. Það er einfaldlega allt of langur tími til að sitja í rútu :!::!: Sérstaklega þegar maður er stór eins og ég og þess vegna alveg hreint lífsins ómögulegt að koma sér þægilega fyrir :S

Annars unnum við leikinn á föstudaginn þrátt fyrir að við höfum örugglega aldrei spilað jafn slakan leik....

En á laugardaginn töpuðum við fyrir liðinu sem er númer 6 í landinu núna en verður líklega í topp 3 sætunum í næstu viku. Oh hvað ég þoli ekki að tapa :frown: en það er víst ekki hægt að vinna alltaf :| og á góðum degi gætum við hæglega unnið þetta lið :D

en ég ætla að koma mér í rúmmið.....

.....laterz


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3